Fimmtudagur 17. janúar 2013 kl. 13:33

GolfTV: Tiger toppar boltann 90 metra

Það voru nokkur átakanlega slæm golfhögg sem voru slegin hjá þeim Rory McIlroy og Tiger Woods í morgun á Abu..

Það voru nokkur átakanlega slæm golfhögg sem voru slegin hjá þeim Rory McIlroy og Tiger Woods í morgun á Abu Dhabi Championship mótinu. Tiger Woods átti þó slakasta höggið en hann toppaði eitt af teighöggum sínum í dag. Boltinn náði ekki inn á braut og fór aðeins 90 metra áfram.

McIlroy átti einnig nokkur döpur golfhögg sem lítill sómi var af og endaði eitt á bílastæði við klúbbhúsið. Engin glansbyrjun sem Nike kylfurnar fá á þessari leiktíð. Myndband af teighögginu hjá Woods má sjá hér að neðan.