GolfTV: Þekktir NBA kappar eru góðir í golfi
Michael Jordan er líklega þekktasti körfuboltamaður allra tíma. Eftir að Bandaríkjamaðurinn lagði skóna á hilluna hefur golfíþróttin verið hans helsta áhugamál. Jordan er skráður með 3 í forgjöf og hann hefur m.a. verið aðstoðarmaður í bandaríska Ryderliðinu.
LeBron James er á hátindi ferilsins í NBA deildinni og bíða margir eftir því að hann taki út „andlegan golfþroska“ þegar líða fer að lokum ferilsins. LeBron James hefur lítið átt við golfíþróttina en í þessari auglýsingu frá Samsung slær hann nokkur golfhögg – og við fyrstu sýn er ljóst að hann á töluvert í land í golfinu þrátt fyrir að hann eigi sama afmælisdag og Tiger Woods – 30. desember.
LeBron James hefur á undanförnum tveimur árum fagnað NBA meistaratitlinum með Miami Heat og í liði hans eru snjallir kylfingar ef marka má lista Golf Digest.
Chris Paul, leikstjórnandi LA Clippers, og einn besti vinur LeBron James er afar áhugasamur um golf og nýtir hverja stund yfir sumartímann til þess að leika golf.
Í Golf Digest var nýverið birtur listi yfir NBA leikmenn sem stunda golf:
Michael Jordan – forgjöf 3.
Jerry West – forgjöf 5,4.
Stephen Curry – forgjöf 2.
Larry Bird – forgjöf 4,1.
Chris Paul – forgjöf 20.
Clyde Drexler – forgjöf 2.
Ray Allen – forgjöf 1,6.
Jason Kidd – forgjöf 6,6.
Deron Williams – forgjöf 8.
Penny Hardaway – forgjöf 1,7.
Bob Cousy – forgjöf 8,6.
Bill Russel – forgjöf 11,7.
Julius Erving – forgjöf 14,9.
Steve Nash – forgjöf 13,7.

