GolfTV: Stenson sló ótrúlega löng högg á lokamótinu í Dubai
Henrik Stenson var í miklu stuði þegar hann varði titilinn á DP lokamótinu á Evrópumótaröðinni um síðustu helgi. Sænski kylfingurinn varði titil í fyrsta sinn á atvinnumannaferlinum og hafði betur í baráttunni gegn Rory McIlroy en Stenson sigraði með tveggja högga mun.
Stenson var gríðarlega öruggur í teighöggunum og sló langt þegar hann þurfti á því að halda. Sem dæmi má nefn þá hitti hann 82% af brautum í upphafshöggunum sem voru um 290 metra löng að meðaltali. Aðeins Rory McIlroy sló lengra að meðaltali á þessu móti. Stenson var með 9 gráðu Callaway X2 Hot dræver í pokanum í Dubai, með 45 tommu skafti og 60 gr. Oban Tour Blue skaft.
How do you stop a guy that averages 312 yards off the tee and hits 86% of fairways? http://t.co/0vbVEj2uWE
— The European Tour (@EuropeanTour) November 22, 2014
Dræverinn var ekki eina kylfan sem Stenson sló langt með í Dubai en hann dúndraði einu höggi með 3-trénu um 270 metra en boltinn var í karga og flaug hann yfir vatn og inn á flötina á 14. Stenson er með Callaway Diablo Octane Tour 3-tré, sem er 13 gráður og með Graffalloy Blue skaft.
Watch @HenrikStenson smash a 3 Wood 294 yards over water, out of the rough on the 14th hole earlier. http://t.co/mmlfFDS5Io
— The European Tour (@EuropeanTour) November 20, 2014
Stenson sló um 245 metra langt högg með 4-járninu í öðru högginu á 14. á þriðja keppnisdegi mótsins. Hann var með Callaway's Legacy Black járn (3-PW) með Modus 120X sköftum.
275 yards. 4 iron? http://t.co/Hjgn5tXGo3
— The European Tour (@EuropeanTour) November 22, 2014

