Laugardagur 12. apríl 2014 kl. 21:51

GolfTV: Snedeker einum metra frá holu og fimmpúttaði

Brandt Snedeker gerði ótrúleg mistök á fjórðu holunni á Augusta í dag á þriðja keppnisdeginum á Mastersmótinu. Bandaríkjamaðurinn fimmpúttaði holunni sem er par 3 og boltinn hjá honum var aðeins í um eins meters fjarlægð þegar pútthrinan hófst.

Snedeker var á -2 þegar hann sló upphafshöggið á fjórðu brautinni í dag og hann lék hana á +4. Hann vill eflaust gleyma þessu hring sem fyrst því hann endaði á 80 höggum í dag.  

Fjórða brautin á Augusta er ekkert lamb að leika sér við, þar sem kylfingarnir þurfa að slá um 220 metra til þess að komast inn á flötina. Snedeker sló í glompu við hliðina á flötinni, og átti gott högg þar sem boltinn endaði um einum metra frá holu.

Það er hægt að sjá fimmpúttið hjá Snedeker með því að smella hér: