Föstudagur 1. nóvember 2013 kl. 13:02

GolfTV: Sjáðu 390 metra drævið hjá högglengsta kylfing heims

Tim Burke mætti Joe Miller frá Englandi í úrslitum keppninnar og í þessu myndbandi má sjá helstu tilþrifin úr þeirri viðureign.

Tim Burke er högglengsti kylfingur veraldar en Bandaríkjamaðurinn sigraði á á heimsmeistaramótinu sem fram fór á kappakstursbraut í Las Vegas í Bandaríkjunum. Tim Burke mætti Joe Miller frá Englandi í úrslitum keppninnar og í þessu myndbandi má sjá helstu tilþrifin úr þeirri viðureign.

Burke, sem er 27 ára gamall Bandaríkjamaður dúndraði boltanum 390,5 metra í fjórðu tilraun sinni í úrslitum keppninnar sem kennd er við Re/Max.

Til þess að setja þetta risahögg í samhengi þá hefði boltinn endaði inn á flöt af hvítum teigum á 3. braut í Grafarholti. Hann hefði yfirslegið 18. af hvítum á Leirdalsvelli, og boltinn hefði endað á flötinni á 1. af hvítum í Vestmannaeyjum.
 

Joe Miller varð annar en alls tóku átta kylfingar þátt í úrslitakeppninni. Alls fengu Burke og Miller sex tilraunir í úrslitum keppninnar. Til þess að höggið væri gilt þurfti boltinn að halda sér inn á braut sem var 46 metra breið.

Fyrir sigurinn fékk Burke um 30 milljónir kr. en hann endaði í öðru sæti í fyrra þegar Ryan Winther sigraði. Umgjörð mótsins hefur aldrei verið glæsilegri og í fyrsta sinn var keppnin haldin á sögufrægu kappakstursvæði í Las Vegas.

Burke var afreksmaður í hafnarbolta á háskólaárum sínum og lék fyrir Miami háskólann sem kastari. Hann starfar í dag sem tryggingaráðgjafi og risadrævin hans eru aukavinna. „Ég hef aldrei slegið boltann betur á ferlinum – og ég vissi að þetta yrði risahögg,“ sagði Burke um sigurhöggið. 

Will Hogue og Tyler Kellett féllu báðir úr leik í undanúrslitum keppninnar. Aaron Mansfield, Patrick Hopper, Jamie Sadlowski og Matt Hanger tóku einnig þátt.