Laugardagur 29. nóvember 2014 kl. 11:32

GolfTV: Scott Gardner sló draumahöggið í Sydney

Scott Gardiner sló frábært högg á Opna ástralska meistaramótinu á fyrsta keppnisdegi mótsins. Ástralinn sló „draumahöggið“ á 11. braut þar sem hann náði að laga stöðuna eftir að hafa fengið skramba á 10. Boltinn fór alls ekki beint ofaní holuna eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan. Gardner fékk Lexus bifreið að launum fyrir þetta högg.