Mánudagur 5. maí 2014 kl. 09:44

GolfTV: Samantekt frá lokahringum á Wells Fargo

J.B. Holmes fagnaði sigri á Wells Fargo meistaramótinu á PGA mótaröðinni í gær. Hann lék samtals á 14 höggum undir pari. Jim Furyk gerði mikla atlögu að Holmes á lokadeginum en það dugði ekki til – þar sem hann lék samtals á 13 höggum undir pari. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá brot af því helsta frá lokakeppnisdeginum.