Sunnudagur 17. apríl 2011 kl. 14:59

GolfTV: Samantekt frá lokahringnum í Malasíu

Það var mikil spenna á lokahringnum á Maybank Malaysian Open mótinu sem lauk í morgun á Evrópumótaröðinni. Eins og áður hefur verið greint frá var það Ítalinn ungi, Matteo Manassero, sem fagnaði sigri í mótinu með að leika samtals á 16 höggum undir pari.

Í myndabandinu hér að ofan má sjá samantekt frá lokahringnum í Malasíu og einnig frábær högg á 10. holu hjá Manassero þar sem hann fékk örn af löngu færi eftir frábært þriðja högg. Manassero er ekki sá högglengsti á mótaröðinni en hann bætir það upp með frábærum járnahöggum og góðu stuttu spili.

Þessi ungi Ítali verður 18 ára gamall á þriðjudag og er yngsti sigurvegarinn í sögu Evrópumótaraðarinnar þegar hann vann Castello Masters mótið síðasta haust, þá aðeins 17 ára og 188 daga gamall. Með sigrinum í dag varð hann einnig sá næst yngsti til að hafa unnið mót á mótaröðinni. Fyrir sigurinn fékk hann rúmar 45 milljónir króna í sinn hlut.