GolfTV: Samantekt frá lokadeginum í Sjanghæ
Dustin Johnson sigraði á HSBC heimsmótinu sem lauk í Sjanghæ í morgun. Bandaríkjamaðurinn setti mótsmet og lék samtals á 24 höggum undir pari. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá samantekt frá því markverðasta sem gerðist á lokadeginum.
Johnson, sem er 29 ára gamall, vann sér inn 170 milljónir kr. en þetta er fyrsti sigur hans á WGC heimsmótaröðinni.
Lokastaðan:
Þegar mest á reyndi lék Johnson fimm holur á síðari 9 holunum á fimm höggum undir pari. Hann fékk örn á 16. braut sem er par 4, og hann gulltryggði sigurinn með því að fá fugl á 17., en Johnson lék lokahringinn á 66 höggum eða 6 höggum undir pari. Ian Poulter, sem hafði titil að verja á þessu móti, varð annar en Englendingurinn var þremur höggum á eftir Johnson.
„Þetta var stórskemmtilegt og ég er stoltur af sjálfum mér að hafa staðist álagið – ég fékk mikla samkeppni frá keppinautunum,“ sagði Johnson sem setti mótsmet með því að leika samtals á 24 höggum undir pari.
Johnson var með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn en hann tapaði því niður strax á annarri holu. Það voru fleiri en Ian Poulter sem fengu hinn 29 ára gamla Bandaríkjamann til þess að svitna aðeins. Norður-Írinn Graeme McDowell náði um tíma að jafna við Johnson í efsta sætinu á Sheshan International vellinum.
Poulter, sem sigraði fyrir ári síðan á þessu móti þegar það fór fram á Mission Hills vellinum, lék lokahringinn á 66 höggum líkt og McDowell sem endaði á -20. Spánverjinn Sergio Garcia varð fjórði á -19 samtals en hann lék frábært golf á lokahringnum eða 63 höggum (-9).
Kylfingar úr Ryderliði Evrópu voru áberandi í efstu sætunum en Justi Rose varð fimmti á -16, Rory McIlroy deildi sjötta sætinu á -15 ásamt Kanadamanninum Graham Delaet.
Þetta er annað árið í röð þar sem að Johnson sigrar á fyrsta PGA mótinu sem hann leikur á í upphafi keppnistímabilsins. Hann hefur nú sigrað á átta PGA mótum en síðasti sigur hans var á Meistaramóti PGA sigurvegara sem haldið er árlega í janúar á Kapalua á Hawaii.
Graham McDowell er annar á peningalista Evrópumótaraðarinnar þegar tvö mót eru eftir – en hann er 23 milljónum kr. á eftir Henrik Stenson frá Svíþjóð sem er efstur á peningalistanum. McDowell verður ekki á meðal keppenda á næsta móti sem hefst á fimmtudag í Tyrklandi en árangur hans í Kína tryggir að hann á enn góða möguleika á að ná efsta sætinu á peningalistanum á lokamótinu sem fram fer í Dubai eftir hálfan mánuð.
Henrik Stenson bætti leik sinn með hverjum hring í Sjanghæ eftir erfiða byrjun. Hann endaði samtals á 5 höggum undir pari etir að hafa leikið lokahringina á 67 og 65 höggum eða -12 samtals. Á fyrstu tveimur hringjunum var Stenson frekar slakur og lék á 74 og 76 eða +6 samtals.
Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar:
[email protected]

