Þriðjudagur 11. október 2011 kl. 14:49

GolfTV: Poulter leiðir með eftir tvo keppnisdaga í Kína

Ian Poulter er efstur þegar tveimur keppnisdögum af sjö er lokið í Shui On Land China Golf Challenge mótinu sem fram fer í Kína. Mótið fer fram í sjö borgum, á sjö dögum og eru leiknar 18 bestu golfholur Kína í mótinu. Þegar fjórum holum er lokið er Poulter efstur á einu höggi undir pari.

Lee Westwood og Liang Wen-chong eru jafnir á pari en Rory McIlroy hefur farið illa af stað og rekur lestina á fjórum höggum yfir pari eftir slaka byrjun.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá fyrsta keppnisdag í mótinu séð frá sjónarhorni Lee Westwood en kylfingarnir búa til myndbandsdagbækur meðan á mótinu stendur.