Föstudagur 24. júní 2011 kl. 22:00

GolfTV: Ólafía og Valdís sáttar með fyrsta hring

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er efst í kvennaflokki á Síma mótinu á Eimskipsmótaröðinni sem hófst í dag á Hvaleyrarvelli. Hún lék á 72 höggum í dag en skammt á hæla hennar kemur Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR sem lék á 73 höggum.

Þær fengu báðar örn á 7. holu og eftir að hafa verið heppnar með annað högg sitt inn á flötina. Rætt er við þær stöllur í vefsjónvarpi Kylfings.is hér að ofan.