GolfTV: Nicklaus og Woods hafa aldrei náð að leika á 59
Um 1,5 milljón golfhringir hafa verið leiknir af kylfingum á PGA mótaröðinni frá upphafi. Þrátt fyrir alla þessa hringi hafa aðeins sex kylfingar náð að leika á 59 höggum á PGA móti. Þekktustu kylfingar allra tíma, Jack Nicklaus, Tiger Woods, Ben Hogan og Phil Mickelson eru ekki á meðal þeirra sem hafa náð þessari draumatölu – 59. Í þessu myndbandi er m.a. rætt við Jack Nicklaus eða Gullbjörninn en besta skor hans á PGA móti var 62 högg.
Þeir kylfingar sem hafa leikið á 59 höggum á PGA mótaröðinni eru:
Al Geiberger, 1977 (-13)
Hann var sá fyrsti sem afrekaði þetta, á Memphis Classic meistaramótinu á Colonial vellinum. Hann fékk 11 fugla og einn örn á vellinum sem er par 72.
Chip Beck, 1991 (-13)
Beck fékk 13 fugla á Sunrise vellinum í Las Vegas sem er par 72. Hann lék fyrri 9 holurnar á 29 höggum eða 7 undir pari og síðari 9 holurnar á 6 undir pari.
David Duval, 1999 (-13)
Duval fékk 11 fugla og 1 örn á Bob Hope Chrysler Classic meistaramótinu

Paul Goydos, 2010 (-12)
Lék fyrsta hringinn á John Deere Classic á 59 höggum og fyrri 9 holurnar lék hann á 28 höggum sem er jöfnun á besta skori á 9 holum á PGA mótaröðinni.
Stuart Appleby, 2010 (-11)
Ástralinn lék lokahringinn á 11 höggum undir pari á Greenbrier Classic og tryggði sér fimmta sigurinn á PGA mótaröðinni. Hann var þar með fimmti kylfingurinn sem náði þessum áfanga.

Jim Furyk, 2013 (-12)
Á öðrum keppnisdegi á BMW meistaramótinu fékk Bandaríkjamaðurinn 11 fugla og einn örn á Conway Farms vellinum. Hann náð ekki að tryggja sér sigur á mótinu.
Annika Sörenstam frá Svíþjóð lék fyrst allra kvenna á 59 höggum á LPGA mótaröðinni árið 2001 á Standard meistaramótinu.

Það hafa margir náð frábæru skori á ýmsum mótaröðum víðsvegar um heim og hér eru nokkur dæmi:
Japaninn Ryo Ishikawa lék á 58 höggum árið 2010 á japönsku mótaröðinni.
Notah Begay III lék á 59 höggum árið 1999 á Nike mótaröðinni sem í dag er Web.com mótaröðin. Doug Dunakey lék á 59 höggum árið 1998 í Miami á Nike mótaröðinni.
Japaninn Masahiro Kuramoto lék á 59 höggum árið 2003 á japönsku mótaröðinni.
Jason Gore lék á 59 árið 2005 á Nationwide mótaröðinni sem í dag er Web.com mótaröðin.
Adrien Mork lék á 59 höggum á Áskorendamótaröðinni í Evrópu árið 2006.
Will Wilcox lék á 59 höggum árið 2013 á Utah meistaramótinu á Web.com mótaröðinni.
Russell Knox varð annar í sögu Web.com mótaraðarinnar sem lék á 59 höggum árið 2013 á Boise meistaramótinu.
Sigurður Elvar Þórólfsson
[email protected]

