GolfTV: Magnað högg hjá Justin Rose úr vonlausri stöðu
Justin Rose sló stórkostlegt högg úr vonlausri stöðu á lokamóti Evrópumótaraðarinnar sem fram fór á dögunum í Dubai. Englendingurinn var í „tómu“ tjóni eftir að hafa slegið boltann út í skóg á 15. braut en hann náði með mögnuðu höggi að koma sér í færi til að fá fugl – sem hann og gerði.

