Miðvikudagur 16. apríl 2014 kl. 10:08

GolfTV: Lengsta pútt Íslandssögunnar? – 42 metra „sull“

Sigmundur Einar Másson setti niður 42 metra langt pútt í æfingaaðstöðu GKG í Kórnum í Kópavogi á dögunum. Íslandsmeistarinn í höggleik frá árinu 2006 þurfti ótal margar tilraunir til þess að koma boltanum rétta leið í holuna og afraksturinn má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan sem birt er á fésbókarsíðunni Golfþjálfarinn.  

Til samanburðar má nefna að handboltavöllur er 40 metrar á lengd.