GolfTV: Kengboginn pútter eftir fall hjá kylfusveininum
Chesson Hadley féll úr leik á Wells Fargo mótinu á PGA mótaröðinni en aðstoðarmaður hans féll með eftirminnilegum hætti á fyrsta keppnisdegi mótsins. Pútterinn hjá Hadley beyglaðist töluvert eftir þetta fall en hann fékk samt sem áður fugl á þeirri holu þar sem atvikið átti sér stað. Kylfusveinninn slasaðist ekki eftir fallið.

