GolfTV: Hvernig á að auka fláa á fleygjárnunum?
Það er stundum gott að geta aukið fláann á fleygjárnunum þegar vippa þarf af stuttu færi eða yfir hindrun. Paul Azinger kennir okkur í þessu stutta kennslumyndbandi tvær leiðir til að auka fláann á fleygjárninu.
Önnur leiðin er að opna kylfuhausinn og þar með auka fláann. Hin leiðin er að halda kylfunni meira til baka eins og Azinger sýnir okkur í myndbandinu.


