Mánudagur 4. nóvember 2013 kl. 08:14

GolfTV: Hvað er í pokanum hjá Dustin Johnson?

Dustin Johnson var í miklu stuði á HSBC meistaramótinu í golfi sem lauk í gær í Sjanghæ í Kína.

Dustin Johnson var í miklu stuði á HSBC meistaramótinu í golfi sem lauk í gær í Sjanghæ í Kína. Hinn 29 ára gamli Bandaríkjamaðurinn fagnaði sínum fyrsta sigri á heimsmótaröðinni frá upphafi en þetta er jafnframt áttundi sigur hans á PGA móti. Johnson lék hringina fjóra á 24 höggum undir pari og hann var með áhugaverð verkfæri í pokanum eins og sjá má hér fyrir neðan:

Dustin Johnson er 1.93 metrar á hæð og þykir einn besti íþróttamaðurinn sem hefur leikið atvinnugolf. Hann var gríðarlega efnilegur sundmaður og átti einnig framtíð fyrir sér sem körfuboltamaður – en hann valdi golfið.

Johnson slær að meðaltali 279 metra upphafshögg en sá sem er högglengstur á PGA mótaröðinni er Jason Kokrak sem slær að meðaltali 299 metra upphafshögg.

Dræver: TaylorMade SLDR (10.5 gráður), Fujikura Fuel 2.0 X skaft.

Brautartré:: TaylorMade R9 (15 gráður) með Aldila RIP 80X skafti; (19 gráður) með Aldila RIP 90X skafti.

Járn: TaylorMade Tour Preferred MB (3-PW) með True Temper Dynamic Gold Tour Issue sköftum.

Fleygjárn: TaylorMade TP xFT (54, 60 gráður) með KBS Tour sköftum.

Pútter: Scotty Cameron/Titleist Newport 2 prototype

Bolti: TaylorMade Lethal

Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá brot úr æfingadegi hjá Dustin Johnson -

 

 

Samantekt frá lokakeppnisdeginum á HSBC meistaramótinu í Kina: