GolfTV: Högg helgarinnar á PGA-mótaröðinni
Tiger Woods, Ryan Moore, Jason Bohn, Rickie Fowler og Trevor Immelman eiga högg helgarinnar í Arnold Palmer Invitational mótinu á PGA-mótaröðinni þessa helgina.
Langa púttið á lokaholunni á öðrum hring hjá Tiger Woods kemst á listann ásamt frábærum vippum hjá Ryan Moore, Jason Bohn og Rickie Fowler.
Íslandsvinurinn Trevor Immelman á högg helgarinnar en hann sló öðru höggi sínu á fyrstu holu, á þriðja hring, niður fyrir erni af um 165 metra færi. Höggin fimm má sjá í myndbandinu hér að ofan.


