Mánudagur 18. apríl 2011 kl. 19:42

GolfTV: Fimm bestu högg helgarinnar

Jhonattan Vegas frá Venesúela átti besta högg helgarinnar að mati PGA-mótaraðarinnar þegar hann skellti niður frábæru pútti fyrir erni á þriðja hringum í Valero Texas Open mótinu sem lauk í gær. Að venju fáum við að sjá fimm bestu höggin, bæði af PGA-mótaröðinni og bandarísku öldungamótaröðinni.

Charley Hoffman varð að sætta sig við annað sætið, bæði í mótinu í Texas og yfir bestu högg helgarinnar. Hann átti frábært vipp í holu úr erfiðri stöðu og nældi sér í fugl. Þessi fimm glæsihögg má sjá hér að ofan.


Jhonattan Vegas hefur leikið frábærlega í ár á sínu fyrsta tímabili á PGA-mótaröðinni.