Þriðjudagur 11. október 2011 kl. 16:24

GolfTV: Einn glæsilegasti golfvöllur landsins opnar á Kjalarnesi


Nýr glæsilegur golfvöllur muna opna um mitt sumar á næsta ári á Kjalarnesi. Útsýni og stórbrotin náttúra auk fjölbreytts fuglalífs mun án efa heilla marga á splunkunýjum golfvelli Golfklúbbsins Brautarholts sem dregur nafn sitt af landinu sem hann stendur á.
Framkvæmdir hófust í júlí 2009 og hefur mest verið unnið að gerð vallarins á sumrin. Búið er að móta og sá í níu brautir og flatir. Flestar eru tilbúnar og gæðin leyna sér ekki. Gott og þétt gras. Gunnar Páll Pálsson, framkvæmdastjóri í verkefninu segir að eftir 1-2 sumarmánuði næsta ár verði völlurinn vel gróinn og því áformað að opna völlinn í júní eða júlí 2012.
Reyndar er nafn vallarins eitt af þeim atriðum sem forsvarsmenn nýstofnaðs klúbbs hafa legið yfir. Þar er meðal annars hugað að því að nafnið grípi áhuga útlendinga á þessum nýjasta golfvelli landsins. Það er jú vonast til að hann muni vekja áhuga erlendra kylfinga, ekki síður en Íslendinga.

Búið er að stofna Golfklúbb Brautarholts og sækja um aðild að ÍBR og GSÍ. Bjarni Pálsson sem er aðal landeigandinn var kosinn fyrsti formaður klúbbsins. Verið er að taka ákvörðun um fyrirkomulag golfskála um þessar mundir, væntanlega verður í byrjun notast við færanleg hús fyrir golfskála. Frekari stækkun vallarins mun ráðast af aðsókn á völlinn, en búið er að taka frá land og hanna 18 holu golfvöll ásamt æfingasvæði.

Búið er að hanna níu brautir og þær liggja í klettaborgum og í síbreytilegu sjónarspili landslags meðfram ströndinni og sumar alveg niður í fjöruborðið. Kylfingar munu fá stórbrotna náttúruna beint í æð og lagning brauta á seinni helmingi vallarins sem er að verða tilbúinn hefur tekist mjög vel. Við hönnun vallarins var haft að leiðarljósi að leggja hann í landið og hafa ósnert rými umhverfis brautir og nýta eiginleika umhverfis sem náttúrulegar hindranir. Tekin var ákvörðun um að hefja framkvæmdir á seinni níu holunum en fyrirhugað er að ljúka við 18 holur.

Edwin Rögnvaldsson hannaði grunnskipulag vallarins en Brautarholtsmenn hafa haft Michael Kelly, bandarískan golfarkitekt, sem hefur komið víða við í hönnun og lögun golfvalla víða um heim, við stjórnvölinn í vettvangshönnun og ráðgjöf við uppbygginguna. Michael hefur yfir 35 ára reynslu af hönnun og uppbyggingu golfvalla. Hann hefur komið að gerð yfir 100 golfvalla um allan heim og unnið með mörgum heimsþekktum golfvallaarkitektum. Fylgt var leiðbeiningum USGA við uppbyggingu vallar og við val á sandlagi flata. Flatir eru uppbyggðar og með vökvunarkerfi. Ellert Þórarinsson vallarstjóri hefur haldið utan um uppbygginguna. Ellert er menntaður frá Elmwood í Skotlandi og hefur starfað sem vallarstjóri hjá Golfklúbbi Akureyrar og hjá Skjeberg Golfklubb í Noregi.

Stórar flatir með miklu landslagi einkenna völlinn og þá hefur mikil vinna verið lögð í teigagerð. Á öllum brautum eru stórir og margir teigar. Öll forgjafarstig fá lengd við hæfi en allir, sama hvaða getustigi þeir eru á fá að glíma við stórar flatirnar. Mike hefur líka lagt mikla vinnu í lögun brauta og nostrað við þá vinnu á stórum tækjum sem hann er vanur að vinna á í þessu starfi sínu, víða um heim.

Mike er heimsþekktur gröfu- eða ýtukarl eða „design shaper“ þó hann sé menntaður golfvallahönnuður. Sagðist snemma hafa frekar viljað vinna við uppbyggingu og lögun vallanna en á skrifstofunni fyrir framan tölvuna.

Bergvíkin í Leiru á Suðurnesjum, frægasta golfhola Íslands, fær í Brautarholti á Kjalarnesi alvöru frænku, ef svo má segja. Og líklega samkeppni um heimsfrægð á Íslandi. Ein af brautunum er par 3 þar sem fljúga þarf boltanum rúmlega 200 metra af aftasta teig yfir stóra vík. Ljóst er að ein erfiðasta golfhola landsins er að fæðast. Ef boltinn flýgur ekki yfir sjóinn er hægt að hugga sig við að vera í stórkostlegu umhverfi. Telja upp á tíu í svekkelsinu en jafna sig fljótt því útsýnið er ótrúlegt, bæði til fjalla og borgar. Af þessum níu brautum sem verða opnaðar á næsta sumri er fjölbreytnin í fyrirrúmi. Kylfingar fá að reyna við allar gerðir, par 3, 4 og 5 holur.

Borgarholtsmenn segja völlinn vera í um 5 km fjarlægð frá Esjunni og sé því í svipaðri fjarlægð frá þessu þekkta fjalli og Hlíðavöllur í Mosfellsbæ og Korpan. „Það er minni vindur en á veginum undir fjallinu þannig að við höfum ekki áhyggjur af veðrinu. Aðrar vindáttir eru ríkjandi á sumrin en á vetrum og það hefur verið mikil blíða hér í allt sumar,“ sagði Gunnar aðspurður um veðrið og bætti við: „Við höfum horft til framtíðar við hönnun þessa golfvallar. Við vildum hafa hann stórglæsilegan og stefnum að því að ljúka við allar 18 holurnar á næstu árum. Hraðinn á framkvæmdum við seinni helminginn mun ráðast af móttökum gestanna.“

Efsta myndin er af 1. braut (10.) þar sem flötin er í vökvun. Hér sjáum við ofan á flötina.

F.v. Ellert vallarstjóri, Gunnar Páll framkvæmdastjóri og Michael Kelly, hönnuður á vettvangi.

„Frænka“ hinnar frægu Bergvíkur á Hólmsvelli í Leiru, hin 220 metra langa par 3 braut, 5. hola. Hér þurfa flestir „lengstu“ kylfuna í pokanum. Slegið er yfir „Gullkistuvíkina“ en kletturinn lengst til hægri heitir Gullkista.

Fleiri myndir frá nýja vellinum á Kjalarnesi má finna hér.