Þriðjudagur 15. apríl 2014 kl. 22:25

GolfTV: Daly tíaði boltann upp í munni á konu og drævaði

Á meðan kastljós fjölmiðla var á Mastersmótinu á Augusta s.l. föstudag var John Daly með „sýningu“ sem fáir urðu vitni að.  Bandaríski kylfingurinn sló þá golfbolta með drævernum eins og hann er vanur að gera en það sem var óvenjulegt var að boltinn var tíaður í munni á konu.

„Ekki reyna þetta heima“ skrifaði Daly á Twitter þar sem þetta myndband var birt. Hann hefur áður gert svipaða hluti á bílastæði í Nashville þar sem Daly var í sandölum. Hann var betur til fara í þessu „atriði“ og var í golfskóm og golffatnaði.