GolfTV: 23 metra langt pútt hjá Rose var 7 sekúndur á leiðinni
Justin Rose er í ágætum málum eftir fyrsta keppnisdaginn á Wells Fargo meistaramótinu á PGA mótaröðinni. Enski kylfingurinn sýndi stórkostleg tilþrif á 5. braut í gær þar sem hann setti niður 23 metra langt pútt fyrir erni. Myndbandið sem er hér fyrir neðan segir allt sem segja þarf. Boltinn var rétt um 7 sekúndur á leiðinni í holuna.

