GolfTV - Valdís Þóra: Skipti út pútternum
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er á kunnuglegum slóðum fyrir lokahringinn í Síma mótinu sem fram fer á Eimskipsmótaröðinni á Hvaleyrarvelli. Valdís er efst í mótinu á 144 höggum og hefur fimm högga forystu fyrir lokahringinn.
Valdís er komin með nýjan pútter í settið og er að pútta mun betur en hún gerði í fyrstu mótum sumarsins. "Ég var með fjóra hringi þar sem ég var með yfir 36 pútt á hverjum hring og þá er ekki hægt að spila gott golf," sagði Valdís en nánar er rætt við hana í myndbandinu hér að ofan.


