GolfTV - Tinna: „Líður vel yfir mínum leik“
Tinna Jóhannsdóttir úr Keili er á mikilli siglingu um þessar mundir og vann sitt fjórða mót í röð á Eimskipsmótaröðinni í gær þegar hún sigraði á Síma mótinu sem fram fór á Hvaleyrarvelli. Tinna vann upp sex högga forystu Valdísar Þóru Jónsdóttir úr Leyni með að leika lokahringinn á 70 höggum eða einu höggi undir pari. Á lokaholunum var mikil spenna en að lokum hafði Tinna betur.
„Ég gerði mér alveg vonir um að ná þessu sex högga forskoti sem Valdís hafði fyrir hringinn. Hraunið hefur upp á margt að bjóða og ég vissi að ef ég næði að fá nokkra fugla strax í byrjun að þá gæti ég sett pressu. Það eina sem ég gat gert var að gera mitt besta og þetta þróaðist svolítið mér í hag,“ sagði Tinna.
Nánar er rætt við Tinnu í sjónvarpi Kylfings.is hér að ofan.


