Mánudagur 27. júní 2011 kl. 16:04

GolfTV - Haraldur Franklín: Vona að sigurinn sendi skilaboð

Haraldur Franklín Magnús úr GR fagnaði kærkomnum sigri í Síma mótinu í gær sem fram fór á Hvaleyrarvelli á Eimskipsmótaröðinni. Haraldur hafði betur gegn Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR í bráðabana um sigurinn eftir að hafa náð að jafna metin á 18. holu með fugli.

"Það kom ekkert annað til greina en að fá fugl á lokaholunni. Gummi var óheppinn að lenda tvisvar í glompu. Hann virtist vera að fara að bjarga sér en það ekki ekki alveg upp. Lokapúttið hjá mér var alveg beint og ég var alveg rólegur yfir því," segir Haraldur Franklín sem er tvítugur að aldri.

Hann var ekki valinn í landsliðið á dögunum sem mun keppa í Portúgal í byrjun júlí. Haraldur var ósáttur með að hafa ekki fengið kallið og segir að sigur sinn um helgina sendi skilaboð.

"Þetta er mun sterkara mót en það sem ég vann á Hellu í fyrra. Ég vona að sigurinn sendi skilaboð upp á framtíðina og ég stefni að því að komast í næsta lið."

Nánar er rætt við Harald í myndbandinu hér að ofan.