GolfTV - Guðmundur: Frammistaðan ekkert til að hrópa húrra fyrir
Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR var skiljanlega ósáttur með að hafa orðið af sínum fyrsta sigri á Eimskipsmótaröðinni þegar hann tapaði í bráðabana fyrir Haraldi Franklín Magnús úr GR. Guðmundur hafði tveggja högga forystu fyrir lokaholuna en fékk skolla á 18. holu á meðan Haraldur fékk fugl. Þeir voru því jafnir á samtals fjórum höggum undir pari eftir 54 holur.
"Það er ekki á hvers manns færi að fá fugl á 18. holu og það var fallegt hjá Haraldi. Ég þrípútta á 12. og 13. holu. Ég hefði átt að vinna þetta og það er ekki hægt að búast við öðru þegar maður hefur tveggja högga forystu fyrir lokaholuna," sagði Guðmundur sem hrósar Haraldi Franklín fyrir frammistöðu sína í mótinu og telur hann einn af fimm bestu kylfingum landsins.
Nánar er rætt við Guðmund í myndbandinu hér að ofan.


