Gísli: „Rosalega gott að byrja sumarið vel“
„Þetta er frekar ljúft. Það er rosalega gott að byrja sumarið vel og vonandi heldur það áfram,“ segir Gísli Sveinbergsson úr Keili sem fór með sigur af hólmi í fyrsta stigamóti sumarsins í drengjaflokki á Arion-banka unglingamótaröðinni. Gísli, sem er 15 ára gamall, lék samtals á fjórum höggum yfir pari og varð einu höggi betri en Egill Ragnar Gunnarsson úr GKG sem varð annar.
„Það er mjög jákvætt að vinna fyrsta mótið. Ég hef æft mjög markvisst og mikið í vetur. Ég hef verið að æfa í rauninni allt, stutta spilið, járnin og drævin og er mjög sáttur með hvernig gengur. Ég er búinn að bíða eftir sumrinu síðan að síðasta tímabili lauk.“
Nánar er rætt við Gísla í myndbandinu hér að ofan.


