Sunnudagur 27. mars 2011 kl. 17:19

Fyrsti sigur Lawrie í níu ár kom í Andalúsíu

Skotinn Paul Lawrie fagnaði sínum fyrsta sigri í níu ár á Evrópumótaröðinni þegar hann sigraði á Open de Andalucia mótinu sem lauk á Spáni í dag. Hann lék samtals á tólf höggum undir pari og varð einu höggi á undan Svíanum Johan Edfors sem varð annar í mótinu.

Lawrie, sem er 42 ára gamall, gat leyft sér að fá skolla á lokaholuna enda var hann í tveggja högga forystu fyrir lokaholuna. Hann sigraði á Opna breska meistaramótinu árið 1999 og er það hans stærsti sigur á ferlinum.

Fyrir sigurinn fékk Lawrie um 27 milljónir króna og þarf ekki að hafa áhyggjur af keppnisrétti sínum fram yfir næstu tvö keppnistímabil. Þriðji í mótin varð Felipe Aguilar frá Síle á tíu höggum undir pari.

Lokastaðan í mótinu