Fowler: „Vissi að ég væri nógu góður“
„Ég hef þurft að bíða en ég er ennþá ungur og vonandi opnar þetta margar dyr. Ég vissi að ég væri nógu góður til að vinna á PGA-mótaröðinni. Þetta er mjög góð tilfinning. Þetta er mikill léttir en um leið gleði sem fylgir þessum sigri. Það er ekki slæmt að vinna, bara nokkuð skemmtilegt,“ sagði Rickie Fowler sem sigraði á Wells Fargo Championship mótinu sem fram fór um helgina á PGA-mótaröðinni. Hann hafði betur gegn Rory McIlroy og D.A. Points í bráðabana.
Fowler tryggði sér sigurinn með frábærum fugli á fyrstu holu í bráðabana en hann sló frábæru öðru höggi að pinna og fékk auðveldan fugl.
„Ég ákvað strax að taka áhættuna. Ég var með góða lengd á pinna og sló beint á flaggið. Ef ég hefði slegið fullkomnu höggi þá hefði boltinn farið nær holu en fór þess í stað aðeins til vinstri.“
Nánar má heyra í Fowler í myndbandinu hér að ofan.

Rickie Folwer flottur í appelsínugulu.

