Sunnudagur 20. maí 2012 kl. 14:33

Dufner leiðir með einu fyrir lokahringinn

Jason Dufner hefur eins höggs forystu fyrir lokahringinn á HP Byron Nelson mótinu sem fram fer í Texas á PGA-mótaröðinni. Dufner er samtals á 8 höggum undir pari í mótinu eftir að hafa leikið þriðja hringinn í gær á 69 höggum eða einu höggi undir pari.

Dufner er einu höggi á undan þeim J.J. Henry, Jason Day og Dicky Pride sem koma jafnir í öðru sæti. Gamli refurinn Vijay Singh er svo í 5. sæti á sex höggum undir pari og á því raunhæfan möguleika á sigri.

Staðan í mótinu