Byrjaðu snemma í golfi,“ segir Hólmfríður hjá Íslandsbanka
- Hólmfríður Einarsdóttir, markaðsstjóri íslandsbanka, er spennt yfir aðkomu fyrirtækisins að unglingamótaröðunum í golfi
„Unga kynslóðin er framtíðin og við höfum séð mikinn vöxt í þessari íþrótt. Íslandsbanki hefur ávallt stutt dyggilega á bakvið ungt fólk í íþróttum og við erum mjög spennt fyrir aðkomu okkar að golfinu,“ segir Hólmfríður Einarsdóttir, markaðsstjóri Íslandsbanka.
Golfsamband Íslands og Íslandsbanki skrifuðu í dag undir samning þess efnis að Íslandsbanki styðji við unglingamótaraðir GSÍ. Í sumar munu mótaraðir unglinga því heita Íslandsbankamótaröð unglinga og Áskorendamótaröð Íslandsbanka.
„Við eigum eftir að verða áberandi í sumar – rauði liturinn á móti græna grasinu. Þetta getur ekki orðið betra. Golf er frábær íþrótt. Ég verð hálf sogmædd þegar ég heyri fólk segja að það sé of ungt til að byrja í golfi og ætli að byrja þegar það verður gamalt. Allir segjast svo hafa viljað byrjað fyrr. Byrjaðu nógu snemma að spila golf,“ bætir Hólmfríður við.
Hún er sjálf mikið í golfi og fylgdi dreng sínum eftir á unglingamótaröðinni fyrir örfáum árum. Nánar er rætt við Hólmfríði í myndbandinu hér að neðan.

