Bjarki: „Alltaf gott að vinna fyrsta mót“
„Það er alltaf gott að vinna fyrsta mót og þetta er í fyrsta sinn sem ég byrja sumar á sigri. Það er góð tilfinning,“ sagði Bjarki Pétursson úr Golfklúbbi Borgarness sem fór með sigur af hólmi í piltaflokki á fyrsta stigamóti sumarsins á Arion-banka mótaröð unglinga á Akranesi í dag. Bjarki lék hringina tvo á samtals fimm höggum yfir pari og vann að lokum góðan sigur.
„Spilamennskan í mótinu hefði mátt vera betri en það er ennþá smá vorbragur yfir þessu og hef ekki getað æft nægilega mikið. Spilamennskan í dag var góð og par var gott skor. Ég er ennþá í skólanum og það er ekki mikill tími til æfinga en ég kemst í það að æfa vel þegar skólinn er búinn.“
Bjarki segir í viðtali við Kylfing.is að hann ætli að einbeita sér að Eimskipsmótaröðinni í sumar og vonast til að standa sig á mótaröð þeirra bestu. „Ég þarf að koma mér í spilaform en vonandi verð ég kominn í toppform um næstu helgi,“ segir Bjarki en nánar má heyra í honum í myndbandinu hér að ofan.


