Bestu högg helgarinnar á Wells Fargo
Í myndbandinu hér að ofan má sjá fimm bestu högg helgarinnar á PGA-mótaröðinni. Meðal annars má sjá þegar Arnold Palmer setti niður langt pútt í móti á Öldungamótaröðinni, ótrúlegt pútt. Palmer lék ásamt Jack Nicklaus og Gary Player.
Webb Simpson, ofurdrævið hjá Rory McIlroy, Steve Flesch og Rickie Fowler eiga svo hin fjögur bestu höggin. Fowler á besta högg helgarinnar en það sló hann í bráðabananum fyrir sigri og tryggði honum sinn fyrsta sigur á PGA-mótaröðinni.

Arnold Palmer kemur við sögu í höggum helgarinnar.

