Miðvikudagur 16. apríl 2014 kl. 09:49

Axel og Haraldur á meðal efstu manna á Reunion

Axel Bóasson og Haraldur Franklín Magnús léku báðir mjög vel á Reunion Intercollegiate háskólamótinu sem fram fór á samnefndum velli í Madison í Mississippi. Axel, sem keppir fyrir Mississippi State háskólann, endaði í fjórða sæti í einstaklingskeppninni og skólalið hans sigraði í liðakeppninni. Axel var á besta skorinu í sínu liði en hann lék á 74 (+2) og 71 (-1) höggi og endaði því á einu höggi undir pari vallar.

Haraldu Magnús lék á 75 (+3) og 71 (-1) var því á +2 samtals og endaði hann í sjöunda sæti af alls  75 kylfingum sem tóku þátt. Haraldur var á besta skorinu í Louisiana liðinu sem endaði í níunda sæti af alls fimmtán liðum sem tóku þátt.

Staðan á mótinu: 

Skorkortið hjá Axel 


Skorkortið hjá Haraldi: