Allar vinnuvélar á golfvellinum knúnar rafmagni
Það eru margar tækninýjungar sem streyma á ári hverju á markað í golfvallageiranum. Margir telja að rafmagnsbíllinn sé framtíðin og nú er hægt að fá flest öll þau tæki sem notuð eru á golfvöllum sem knúin eru rafmagni.
Á Chambers Bay golfvellinum Washingtonríki í Bandaríkjunum var ákveðið nota eingöngu tæki knúin rafmagni sem verður að teljast óvenjulegt enda flest vinnutæki á golfvelli knúin bensíni eða olíu. Þetta felur í sér talsvert minni hljóðmengun enda heyrist mun minna í rafmagnsvinnutækjum. Vallarstarfsmenn á Chambers Bay telja að það séu fjölmargir kostir við að nota rafmagnstæki og telja að þau slái grasið betur.
Finna má fleiri skemmtilegar umfjallanir um tæki og golfvallafræði á heimasíðu SÍGÍ en þar hefur Bjarni Hannesson verið duglegur að rita pistla og hugleiðingar sem golfáhugamenn ættu að hafa gaman af.


