Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Valdi nýútskrifaðan háskólakylfing í bandaríska liðið í Forsetabikarnum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 2. september 2026 kl. 16:17

Valdi nýútskrifaðan háskólakylfing í bandaríska liðið í Forsetabikarnum

„Ég þurfti að klípa mig eftir símtalið frá Brent Snedeker, fyrirliða. Svo hringdi ég í mömmu og lét hana vita. Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu tækifæri. Að fá að leika í búningi Bandaríkjanna í Forsetabikarnum er bara draumi líkast,“ sagði hinn 21 ára Jackson Koivun sem verður í 12 manna liði Bandaríkjamanna gegn Alþjóðaliðinu í Presedent’s Cup á Medinah golfvellinum í lok september.

Jackson Koivun gerðist atvinnumaður eftir háskólagöngu í vor og lék m.a. í Opna bandaríska mótinu, US OPEN, þar sem okkar maður, Gunnlaugur Árni Sveinsson var einnig meðal þátttakenda.

Koivun sigraði á þriðja mótinu sem hann tók þátt í sem atvinnumaður í sumar og heillaði marga upp úr skónum, m.a. fyrirliða bandaríska liðsins í Forsetabikarnum, Brant Snedeker, sem gerði sér far um að leika í móti með hinum 21 árs kappa í sumar. Hann valdi Koivun fyrstan af sex leikmönnum sem hann gat valið, hinir voru sex efstu á stigalistanum.

Gunnlaugur Árni Sveinsson sagði í viðtali við kylfingur.is í sumar að hann hafi oft leikið gegn Koivun og þeir unnið hvorn annan á víxl. „Það er náttúrulega bara risastórt að sjá þetta gerast (að hann skyldi vinna PGA mót svona fljótt). Þetta er bara ágætis félagi minn, ég hef oft spilað við hann í háskólagolfinu. Ég hef unnið hann og hann hefur unnið mig og þannig að þetta sýnir mér og okkur háskólakylfingunum, að við erum á rosalega góðum stað og sýnir líka út á við hvað háskólagolfið er orðið sterkt.“