Sjáið sveiflur bestu áhugamanna Breta og Íra á Walker Cup
Walker Cup er eitt elsta og virðulegasta liðamót í áhugamannagolfi í heiminum og fer nú fram á Lahinch strandvellinum í County Claire í Írlandi um næstu helgi. Þar eigast við tíu manna lið skipuð bestu áhugakylfingum Bandaríkjanna annars vegar og Bretlands og Írlands hins vegar.
Bandaríkjamenn hafa haft mikla yfirburði í mótinu frá upphafi hvað sigra varðar og hafa frá árinu 1922, þegar það var leikið fyrst, unnið 40 sinnum, Bretar/Írar hafa unnið 9 sinnum og einu sinni hefur verið jafntefli.
Keppnisfyrirkomulag er þannig að leikið er yfir tvo daga, föstudag og laugardag 5.-6. sept. Keppt er í fjórmenningi (Foursomes - tveir leikmenn slá sama boltann til skiptis) á morgnana og tvímenningi (Singles) eftir hádegi.
Stökkpallur fyrir stjörnurnar: Walker Cup hefur þjónað sem lokastig margra af bestu kylfingum sögunnar áður en þeir gerðust atvinnumenn. Meðal þekktra leikmanna sem keppt hafa í Walker Cup eru:
- Bandaríkin: Bobby Jones, Jack Nicklaus, Tiger Woods, Phil Mickelson, Justin Thomas, Dustin Johnson, Jordan Spieth og Patrick Cantlay.
- Bretland og Írland: Nick Faldo, Colin Montgomerie, Rory McIlroy, Luke Donald, Paul Casey og Pádraig Harrington.
George Herbert Walker, sem var forseti USGA árið 1920 (og afi George H.W. Bush og langafi George W. Bush, Bandaríkjaforseta), var mikill áhugamaður um að koma á fót alþjóðlegri keppni. Hann gaf bikarinn sem keppt er um, og hlaut mótið nafn hans: The Walker Cup og var keppt í fyrsta sinn 1922 í Bandaríkjunum.
Hér í myndskeiði má ská sveiflur liðsmanna G&B liðsins á Walker Cup.




