Scheffler sigraði á lokamótinu - kominn upp fyrir Tiger í peningaverðlaunum á PGA
Scottie Scheffler, besti kylfingur heims sýndi styrk sinn og getu í lokahring lokamótsins í FedEx úrslitakeppninni þegar hann stóð uppi sem sigurvegari East Lake vellinum í Atlanta. Scheffler var þremur höggum frá forystusauðnum Viktor Hovland frá Noregi fyrir lokahringinn en tók síðasta hringinn í mótinu með stæl og vann úrslitakeppnina í annað sinn á ferlinum en síðast vann hann árið 2024.
Scheffler var í 3. sæti fyrir lokahringinn en bæði Hovland sem var efstur og Ryan Gerard áttu slakan lokadag og urðu að sætta sig við 2. og 3. sætið. Scottie gaf tóninn strax á 2. holu sem er 190 metra löng þegar hann setti upphafshöggið hér um bil ofan í holu. Hann lék hringinn á fjórum undir pari.
Scheffler styrkti stöðu sína í efsta sæti heimslistans og tók 10 milljón dollara verðlaunin, þau hæstu á PGA mótaröðinni. Þetta var hans þriðji sigur á mótaröðinni í ár en hann vann „aðeins“ þrisvar sinnum en var oftar í 2. sæti. Með sigrinum fór Scheffler fram úr Tiger Woods yfir verðlaunafé í sögu PGA með rúma 130 milljón dollara.
Jafn í 4. sæti var Englendingurinn Alex Fitzpatrick sem vann sér þátttökurétt á PGA mótaröðinni í vor þegar hann sigraði í eina mótinu þar sem leikið er í tveggja manna liðakeppni. Alex var með bróður sínum, risameistaranum Matt og sigurinn á mótinu tryggði honum þátttökurétt sem hann hefur svo sannarlega nýtt sér með frábærri frammistöðu.



