Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Mjög góð frammistaða hjá Óliver Elí með Evrópuliðinu sem vann Breta og Íra
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 22. ágúst 2026 kl. 17:56

Mjög góð frammistaða hjá Óliver Elí með Evrópuliðinu sem vann Breta og Íra

Óliver Elí Björnsson stóð sig mjög vel með liði meginlands Evrópu sem vann 14,5-10,5 sigur í Jacques Léglise Trophy sem fram fór á The Island Golf Club á Írlandi. Mótið er árleg liðakeppni þar sem níu af fremstu kylfingum meginlands Evrópu, 18 ára og yngri, mæta úrvalsliði Bretlands og Írlands.

Fimmtán ára Keiliskappinn skilaði 2,5 vinningum úr fjórum leikjum, vann tvo, gerði eitt jafntefli og tapaði einum leik í fjórmenningi.

Í síðustu umferðinni gegn Aaron Moody í hörkuleik í tvímennnigi á laugardag voru miklar sveiflur. Þar komst Moody í fjögurra holna forskot en Óliver Elí vann næstu fjórar og jafnaði, vann svo fimmtu holuna af sex en Moody náði að jafna á 15. holu og þeir jöfnuðu síðan síðustu þrjár brautirnar.

Í fjórmenningi á laugardegi lék Óliver Elí með Gonzalo Ramos og þeir töpuðu 6/5 á móti Charlie Rushbride og Aaron Moody.

Fyrri keppnisdaginn byrjaði Óliver í fjórmenningi og lék með Norðmanninum Mathias Aase. Þeir mættu Englendingunum Cole Self og George Whitehead. Óliver og Aase tryggðu Evrópu fyrsta stig mótsins með sannfærandi sigri, 3/1.

Óliver hélt áfram þar sem frá var horfið í tvímenningi í seinni leik fyrri keppnisdaga þegar hann mætti Íranum Isaac Oliver. Keilismaðurinn lék frábært golf og vann leikinn 4/3. Óliver Elí var sex undir pari eftir 15 holur þegar leiknum lauk.

Hér má sjá lokastöðu mótsins

Jacques Léglise Trophy er árleg liðakeppni þar sem níu af fremstu kylfingum meginlands Evrópu, 18 ára og yngri, mæta úrvalsliði Bretlands og Írlands.

Í mótinu hafa leikið margir af bestu kylfingum heims, m.a.: Jon Rahm, Viktor Hovland, Sergio Garcia, Henrik Stenson, José María Olazábal, Justin Rose, Tommy Fleetwood, Matt Fitzpatrick, Padraig Harrington, Luke Donald og fleiri.