Fréttir

Magnús með draumahögg í Barcelona
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 2. maí 2023 kl. 13:36

Magnús með draumahögg í Barcelona

Kylfingurinn og ljósmyndarinn Magnús Hjörleifsson fór holu í höggi á 14. braut á Club De Golf Barcelona í síðustu viku. Magnús smellhitti 8-járnið, boltinn flaug inn á flöt og svo beint í holu.

Maggi hefur stundað golfíþróttina lengi og á auðvitað fleiri draumahögg í bankanum, hann hefur farið tvisvar holu í höggi á sínum gamla heimavelli, Hvaleyrinni í Hafnarfirði, á 6. og 15. holu.