Fréttir

Mæti tvíefld til leiks
Miðvikudagur 11. janúar 2023 kl. 13:22

Mæti tvíefld til leiks

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr golfklúbbnum Keili, ætlar að mæta tvíelfd til leiks á næsta tímabili á LET mótaröðinni í golfi. Hún endaði ekki nógu hátt á stigalista LET á síðasta tímabili en náði ljómandi góðum árangri á úrtökumóti í desember þar sem hún endaði í 42. sæti á 2. stiginu og fær þar með inngöngu í nokkuð mörg mót á næsta tímabili, þó ekki þau stærstu. 
Guðrún Brá setti færslu á Facebook i gær þar sem hún þakkaði þjálfurum og sínum nánustu fyrir mikinn og góðan stuðning á viðburðaríku ári. Hún hlakkar til golfársins 2023.