Fréttir

Lengri, betri og stöðugri ?
Þriðjudagur 10. janúar 2023 kl. 23:01

Lengri, betri og stöðugri ?

Nú fer að renna í garð sá tími ársins sem nýr golfbúnaður tekur að streyma i golfverslanir. Í ár eru allir helstu framleiðendur að kynna nýja drivera. M.a. kynnir Callaway til leiks Paradym, Ping kemur með G430, Aerojet kemur frá Cobra. Frá Taylor Made kemur ný útgáfa af Stealth sem sló í gegn í fyrra og bæði Tiger Woods og Rory McIllroy settu hann í pokann hjá sér. Nafnið á þeim nýja er ekki af flóknari endanum. Stealth 2, takk fyrir. Kemur í þremur útgáfum. Hinn góðkunni Rick Shiels er að sjálfsögðu búinn að kíkja á gripinn. Gefið ykkur 13 mínútur og sjáið hvað kappinn hefur að segja um Stealth 2. Svo væri ekki verra að fara og prufa þessa drivera sjálf.