Heiður og Helgi meistarar á Vatnsleysuströnd
Heiður Björk Friðbjörnsdóttir og Helgi Runólfsson urðu klúbbmeistarar Golfklúbbs Vatnsleysustrandar en meistaramótinu lauk í gær.
Sigurinn var öruggur hjá þeim báðum, Heiður lék á 337 höggum og Helgi á 287 höggum. Í kvennaflokki varð Oddný Þóra Baldvinsdóttir varð önnur. Í meistaraflokki karla varð Jóhann Hrafn Sigurjónsson annar en þriðji varð Ívar Örn Magnússon.
Hart var barist í flestum flokkum en hér má sjá úrslit úr öllum flokkum sem leikið var í á Vatnsleysuströnd.