Fréttir

Frábær árangur hjá Gunnlaugi og Arnari Daða í Írlandi
Föstudagur 29. júlí 2022 kl. 09:22

Frábær árangur hjá Gunnlaugi og Arnari Daða í Írlandi

Arnar Daði Svavarsson og Gunnlaugur Árni Sveinsson, báðir úr GKG, gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í sínum aldursflokki á sterku alþjóðlegu móti sem fram fór á Lough Erne golfsvæðinu á Norður-Írlandi en hönnuður þess er Sir Nick Faldo.

Gunnlaugur Árni, sem er 17 ára, sigraði í flokki pilta 19 ára og yngri en hann lék hringina þrjá á 5 höggum undir pari vallar og lék frábært golf, 71-68-71. Gunnlaugur Árni sigraði með 5 högga mun og var sá eini sem lék á undir pari.

Arnar Daði, sem er 13 ára, sigraði í drengjaflokki 15 ára og yngri. Hann lék hringina þrjá á +8 eða 223 höggum. Arnar Daði sigraði með 6 högga mun. Aðeins þrír kylfingar af 42 léku alla hringina undir 80 höggum.

Keppt var í ýmsum aldursflokkum á þessu móti sem er boðsmót þar sem að landsmeisturum víðsvegar úr Evrópu er boðið að taka þátt.