Feðgar etja kappi um Landsmótstitil
Mikil barátta er fraumundan í Landsmótinu í golfhermum. Lokakeppnin fer fram sunnudaginn 2. apríl í Íþróttamiðstöð GKG í Garðabæ.
Leikið verður á Grafarholtsvelli en fyrirhuguð spá fyrir lokahringinn er mikill vindur og jafnvel ausandi rigning samkvæmt upplýsingum frá Úlfari Jónssyni mótsstjóra. Saga Traustadóttir GKG og Gunnlaugur Árni Sveinsson GKG eiga titil að verja. Þau eru bæði í lokakeppninni. Saga varð í öðru sæti á eftir Heiðrúnu Önnu Hlynsdóttur GOS í kvennaflokknum. Atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru líka meðal keppenda svo búist er við spennandi keppni.
Í karlaflokknum er uppi áhugaverð staða þar sem Gunnlaugur Árni mun meðal annrra etja kappi við föður sinn Svein Kristinn Ögmundsson og Sigurð Arnar Garðarsson sem nýlega vann sér inn milljónir í alþjóðlegri golfhermakeppni. Sigurðar Arnar var efstur í forkeppninni á 60 höggum og er án vafa fremsti golfhermaspilari landsins í dag.
Spennandi keppni framundan eftir rúmlega viku þar sem allt getur gerst.
Landsmót kvenna í golfhermum seinni undankeppni |
||||
Sæti |
Nafn |
Klúbbur |
Að pari |
Skor |
1 |
Heiðrún Anna Hlynsdóttir |
GOS |
-4 |
67 |
2 |
SagaTraustadottir |
GKG |
-2 |
69 |
2 |
Guðrún Brá Björgvinsdóttir |
GK |
-2 |
69 |
4 |
Sara Kristinsdóttir |
GM |
+1 |
72 |
4 |
Ragnhildur Kristinsdóttir |
GR |
+1 |
72 |
4 |
Hrafnhildur Guðjónsdóttir |
GO |
+1 |
72 |
7 |
Berglind Erla Baldursdóttir |
GM |
+2 |
73 |
8 |
Elsa Maren Steinarsdottir |
GL |
+4 |
75 |
Elsa Maren var með betri árangur á seinni 9 holum og hlýtur því 8. sætið. |
Landsmót karla í golfhermum seinni undankeppni |
||||
Sæti |
Nafn |
Klúbbur |
Að pari |
Skor |
1 |
Sigurdur Arnar Garðarsson |
GKG |
-11 |
60 |
2 |
Aron Snær Júlíusson |
GKG |
-8 |
63 |
3 |
Guðjón Frans Halldórsson |
GKG |
-5 |
66 |
4 |
Gunnlaugur Árni Sveinsson |
GKG |
-4 |
67 |
5 |
Aron Skúli Ingason |
GM |
-3 |
68 |
5 |
Ingi Rúnar |
-3 |
68 |
|
5 |
Sveinn K Ögmundsson |
GKG |
-3 |
68 |
5 |
Viktor Ingi Einarsson |
GR |
-3 |
68 |